Lokahóf Golfsambands Íslands fór fram á laugardagskvöld í höfuðstöðvum Eimskipafélags Íslands.
Á hófinu var Anna Sólveig Snorradóttir valin efnilegust kvenna auk þess sem Signý Arnórsdóttir hlaut stigameistara titil kvenna. Stigameistaratitlar klúbbsins voru alls 6 í ár.
Stigameistarar GK í ár eru:
Signý Arnórsdóttir kvennaflokkur
Anna Sólveig Snorradóttir 17-18 ára stúlkur
Gísli Sveinbergsson 15-16 ára drengir
Henning Darri Þórðarsson 14 ára og yngri drengir
Stigameistaratitill klúbba í kvennaflokki
Stigameistaratitill klúbba í unglingaflokki (klúbburinn hefur unnið þennan titil fjögur ár í röð eða frá því að byrjað var að veita þessi verðlaun.)
Gaman er einnig að geta þess að nú eru tvö ár liðin síðan íslenska mótaröðin fór að telja á heimslista áhugamanna.
Keilir á í dag efstu tvo menn á lista karla þ.e. Kristján Þór Einarsson og Axel Bóasson og konur númer 3 og 4 á listanum eða þær Guðrúnu Brá Björgvinsdóttir og Signý Arnórsdóttir.
Listann í heild má sjá hér meðfylgjandi.
Við óskum stigameisturum ársins 2012 til hamingju sem og iðkendum öllum
Stjórn Keilis