Gísli Sveinbergsson spilaði vel í dag og endaði hringinn á parinu (71) og er jafn í 17 sæti. Hann hóf leik á 10. teig og byrjaði vel, hitti 8 grín af fyrstu 9 og nældi í fjóra fugla en fékk svo tvo tvöfalda skolla, á 17 holu þar sem hann þurfti að taka víti og á þeirri fjórðu en þá lenti hann í brautarglompu sem ekki var hægt að slá úr á grínið. Hann endaði svo hringinn á fugli til að gíra sig fyrir framhaldið og er fullur sjálfstraust fyrir morgundaginn.
Hann hefur leik 12.50 á íslenskum tíma á morgun af fyrsta teig.
Fyrir þá sem vilja spreyta sig á frönskunni og fylgjast með mótinu á netinu þá er linkur fyrir þig hér.