Á sunnudaginn lauk Egils-Gull mótinu á Eimskipamótaröðinni.
Í karlaflokki endaði Gísli Sveinbergsson í öðru sæti, á pari, eftir góðan lokahring, 67 högg en Ragnar Már sigraði eftir glæsilegan hring á sunnudeginum, 62 högg og vallarmet. Birgir Björn og Henning Darri voru svo jafnir í sjötta sæti ásamt öðrum kylfingum samtals fjóra yfir pari.
Í kvennaflokki varð Guðrún Brá aftur í öðru sæti, 10 höggum yfir pari og aðeins einu höggi á eftir Berglindi Björnsdóttur sem sigraði mótið. Jafnar í þriðja sæti voru þær Þórdís Geirsdóttir, Signý Arnórsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir samtals á 16 yfir pari.
Góður árangur hjá okkar fólki!
Næstu helgi verða svo unglingarnir okkar á Íslandsbankamótaröðinni að spila á Hlíðarvelli Mosfellsbæ og á Áskorendamótaröðinni sem haldin verður í Grindavík.