Gísli Sveinbergsson og félagar hans í Kent State háskólaliðinu sigruðu á Mid American Conference meistaramótinu sem haldið var um helgina.
Kent State skólinn sigraði með 20 högga mun og leikur til úrslita í NCAA um miðjan maímánuð.
Gísli lék á 71, 72, 74 og 78 höggum eða +11 yfir pari og endaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni.
Gísli var valinn kylfingur ársins (MAC freshman of the year) sem eru að leika á fyrsta ári í háskólagolfinu. Gísli tók þátt í öllum mótum Kent State skólans í vetur og stóð sig mjög vel.
Einnig var hann valinn í heiðurslið keppninnar (All MAC second team honor)