Í gærkveldi lauk einu skemmtilegasta golfmóti sumarsins þegar Meistaramóti Keilis 2017 lauk með glæsilegum hætti. 290 Keilisfélagar á öllum aldri og getu tóku þátt í ár. Meistaramótið var spilað á 7.dögum og fyrstu 3. dagana eru það eldri og yngri kynslóðin sem spila. Veðrið var mjög gott þessa daga og rúllaði mótið vel af stað. Erfiðar aðstæður tóku svo við miðvikudag og fimmtudag en mjög mikill vindur setti stóran svip á mótið. Allt gekk samt einstaklega vel og föstudagurinn og laugardagurinn voru mjög góðir og allir að njóta sín. Eins og allir vita munum við opna 3. nýjar holur föstudaginn 14. julí. Það er því staðreynt að Meistaramót Keilis 2017 var kveðjumót
Hvaleyrar í núverandi mynd. Meistaramótið er einstök upplifun fyrir hinn almenna félagsmann og þar fær hann að spila nokkra daga keppnisgolf með frábæra umgjörð á einum besta  golfvelli landsins. Við erum mjög ánægð með hvernig tókst í ár og allt gekk þetta vel. Vallarstarfsmenn hafa unnið frábært starf í sumar og völlurinn lítur mjög vel út og  verður í toppstandi í Íslandsmótinu í höggleik. Veitingasala Brynju og starfsmenn golfverslunar Keilis voru undir miklu álagi þessa daga og þeim ber að þakka frábæra vinnu.
Klúbbmeistari Karla 2017 eftir umspil er Birgir Björn Magnússon og klúbbmeistari kvenna 2017 er Hafdís Alda Jóhannesdóttir. Óskum við þeim innilega til hamingju með titlana. Að vanda var lokahófið veglegt og góð mæting var á hana. Svo var skellt í alvöru ball með hljómsveit hússins og dansað fram eftir nóttu. Golfklúbburinn Keilir þakkar fyrir frábært mót og óskar öllum vinningshöfum til hamingju með árangurinn. Hér koma svo öll úrslit mótsins.
Meistaraflokkur karla
1.sæti Birgir Björn Magnússon       297 (eftir 3. holu umspil)
2.sæti Vikar Jónasson               297
3.sæti Bjarni Sigþór Sigurðsson     300 (eftir bráðabana)
Meistaraflokkur kvenna
1. sæti Hafdís Alda Jóhannsdóttir   313
2. sæti Þórdís Geirsdóttir          321
3. sæti Sigurlaug Rún Jónsdóttir    330
1. Flokkur karla
1. sæti Ásgeir Jón Guðbjartsson     307
2. sæti Elías Beck Sigurþórsson     309
3. sæti Gunnar Þór Halldórsson      312
1. Flokkur kvenna
1. sæti Anna Snædís Sigmarsdóttir   334
2. sæti Kristín Pétursdóttir        339
3. sæti Margrét Berg Theódórsdóttir 345
2. Flokkur karla
1. sæti Guðni Siemsen Guðmundsson   332
2. sæti Davíð Kristján Hreiðarsson  335
3. sæti Ingvar Kristinsson          337 (eftir bráðabana)
2. Flokkur kvenna
1. sæti Margrét Sigmundsdóttir      362
2. sæti Sigríður Jensdóttir         382
3. sæti Kristín F Gunnlaugsdóttir   383
3. Flokkur karla
1. sæti Einar Páll Pállsson         353
2. sæti Eyjólfur Einar Elíasson     354
3. sæti Haraldur H Stefánsson       357
3. Flokkur kvenna
1. sæti Birna Ágústsdóttir          398
2. sæti Guðrún Ösp Þorgnýsdóttir    399
3. sæti Matthildur Helgadóttir      403
4. Flokkur karla 
1. sæti Reynir Kristjánsson         281
2. sæti Sigurjón Gunnarsson         294
3. sæti Þórir Ómar Grétarsson       297
4. Flokkur kvenna punktakeppni
1. sæti Anna Sigríður Gunnarsdóttir    66
2. sæti Kristín Sigríður Geirsdóttir   61
3. sæti Bryndís Eysteinsdóttir         57
5. Flokkur karla punktakeppni
1. sæti Bergur Ingi Ólafsson           101
2. sæti Gústav Axel Gunnlaugsson       75
3. sæti Rúnar Már Bragasson            67
Karlaflokkur 55 ára og eldri forg 0-15,4
1. sæti Tryggvi Þór Tryggvason         239
2. sæti Jóhann Sigurbergsson           245
3. sæti Lúðvík Geirsson                247
Karlaflokkur 55 ára og eldri forg 15,5-34,4
1. sæti Steingrímur Hálfdánarson       265
2. sæti Bjarni Ásgeirsson              268
3. sæti Björn Árnason                  273
Kvennaflokkur 55 ára og eldri forg 15,5-34,4
1. sæti Ástríður Sólrún Grímsdóttir    321
2. sæti Jenný Olga Pétursdóttir        328
Kvennaflokkur 70 ára og eldri punktakeppni
1. sæti Sigrún Margrét Ragnarsdóttir   67
2. sæti Kristín H Pálsdóttir           47
3. sæti Erna Finna Inga Magnúsdóttir   42
Kvennaflokkur 70 ára og eldri punktakeppni m. Forgj.
1. sæti Kristín H Pálsdóttir           95
Karlaflokkur 70 ára og eldri
1. sæti Björn Finnbjörnsson            80
2. sæti Þórhallur Sigurðsson           76
3. sæti Guðlaugur Gíslason             70
Karlaflokkur 70 ára og eldri punktakeppni m. Forgj.
1. sæti Hallgrímur Hallgrímsson        100
Stúlkur 17 – 18 ára
1. sæti Thelma Björt Jónsdóttir        281
Drengjir 15- 16 ára
1. sæti Svanberg Addi Stefánsson      242
2. sæti Steingrímur Daði Kristjánsson 245  (eftir bráðabana)
3. sæti Ólafur Arnar Jónsson          245
Telpur   15  – 16 ára
1. sæti Inga Lilja Hilmarsdóttir      278
2. sæti Jóna Karen Þorbjörnsdóttir    320
Strákar  14 ára og yngri
1. sæti Arnar Logi Andrason           261
2. sæti Stefán Atli Hjörleifsson      264
3. sæti Tómas Hugi Ásgeirsson         300
Stelpur   14 ára og yngri
1. sæti Ester Amíra Ægisdóttir        340
2. sæti Nína Kristín Gunnarsdóttir    344
Meistaramót barna á Sveinskotsvelli
Drengir  
1. sæti Oddgeir Jóhannsson            126
2. sæti Brynjar Logi Bjarnþórsson     131
3. sæti Birgir Páll Jónsson           145
Stúlkur  
1. sæti Lilja Dís Hjörleifsdóttir     142
2. sæti Heiðdís Edda Guðnadóttir      150
3. sæti Ebba Guðríður Ægisdóttir      187
Nándarverðlaun 10. braut
02.07   Sigrún Margrét Ragnarsdóttir   4,03
03.07   Björgvin Sigurðsson	       2,10
04.07   Björn Finnbjörnsson	       0,66
05.07   Ólafur Þór Ágústsson	       0,70
06.07   Ingvi Geir Ómarsson	       2,20
07.07   Helgi Runólfsson	       0,29
08.07   Leópold Sveinsson	       0,97