Á morgun, miðvikudaginn 25. júní, hefst Finnish International Junior Championship á Vierumäki Golf Club í Finnlandi. Sautján íslenskir krakkar eru skráðir til leiks og þar af tveir Keilisstrákar, þeir Henning Darri Þórðarson og Helgi Snær Björgvinsson.
Mótinu er skipt niður í fjóra flokka, stelpur og strákar 16 ára og yngri og svo stelpur og strákar 14 ára og yngri. Báðir Henning og Helgi eru að spila í 16 ára flokknum. Henning Darri á rástíma 11.30 á íslenskum tíma af 1. teig og Helgi Snær klukkustund síðar, 12.30 af 10. teig.
Hægt er að fylgjast með strákunum hér.