Í apríl verður boðið uppá fullt af nýjum námskeiðum. Við ætlum að bjóða kylfingum uppá þá nýjung að vera með morgunnámskeið og hádegisnámskeið Þessi námskeið verða 1 sinni í viku í 5 vikur, 1 klst í senn eða samtals 5 klst

Morgun og hádegisnámskeið verða í boði frá kl 08:00 – 09:00 eða kl 12:00-13:00 á eftirfarandi dögum:

Mánudagar 13, 20, 27 apríl og 4 maí
Miðvikudagar 15, 22, 29 apríl og 6, 13 maí

Námskeið á laugardögum eru í boði fyrir þá sem ekki hafa tök á því að komast á virkum dögum en það námskeið verður á eftirfarandi frá kl 13-14 á eftirfarandi dagsetningum.

Laugardagar 18, 25 apríl og 2, 9 ,16 maí

ATH! Ef þess er óskað (og nægileg þáttaka fæst)  þá er hægt að byrja morgunnámskeiðin kl 7:30

Einnig verða í boði kvöldnámskeið á eftirfarandi dögum og tímum

Þriðjudagar Kl 20-21 og Kl 21-22
14, 21, 28 apríl og 5, 12 maí

Fimmtudagar 19-20 og 20-21
16, 23, 30 apríl og 7, 13  maí

Hvert námskeið er samtals 5 klst eða 1 klst í viku í 5 vikur. Farið verður í alla helstu þætti varðandi púttin, stutta spilið og sveifluna ásamt vídeó greiningu. Reynt verður að hafa öll námskeið eins einstaklingsbundin og mögulegt er.

Verð á námskeiði 12.000 kr og boltar eru ekki innifaldir í verðinu. En nemendum býðst að kaupa boltakort í Hraunkoti með afslætti. Lágmarksþáttaka á hvert námskeið er 4 en hámarkið er 6 nemendur.

Skráning og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á bkbgolf@gmail.com eða í síma 866-2227

Golfkennari er Björn Kristinn Björnsson PGA Golfkennari