Þá er komið að Icelandair golfers mótinu sem ekki var hægt að halda í vor vegna veðurs. Verðlaunin eru glæsileg alls 10 flugmiðar með Icelandair. Rúsínan í pylsuendanum er að við tökum forskot aftur á sæluna og leikum nýju par 3 holuna í mótinu. Frábært tækifæri til að prófa að leika þessa glæsilegu holu, sem er að fá nafnið “Yfir hafið og heim”. Skráning fer fram á golf.is.