Golfklúbburinn Keilir endaði í 8. sæti á Evrópumóti golfklúbba sem haldið var í Portúgal.
Keilir ávann sér rétt til að keppa á þessu móti eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar golfklúbba sl. sumar.
Liðið skipuðu þeir Vikar Jónasson, Henning Darri Þórðarson og Andri Páll Ásgeirsson. Liðstjóri var Axel Bóasson.
Þeir félagar enduðu á tveimur höggum yfir pari í heildina.
Það var franski golfklúbburinn Golf st. Germain en Laye sem sigraði á samtals fimmtán höggum undir pari.
Tuttugu og fimm golfklúbbar víðsvegar frá Evrópu tóku þátt í Evrópumótinu að þessu sinni.