Eins og sl. vor þá ætlar Golfklúbburinn Keilir að bjóða upp á fræðslu um golfreglur fyrir meðlimi sína. Námskeið verða haldin fimmtudaginn 12. apríl og miðvikudaginn 25. apríl í Hraunkoti, sal á efri hæð og hefst kl. 20:00.

Skráning í Hraunkoti sími 565 – 3361 eða í tölvupósti á hraunkot@keilir.is

Kennari er golfdómarinn Hörður Geirsson.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á þetta námskeið og undirbúa sig þannig fyrir sumarið, ekki síst þar sem golfreglurnar breyttust um síðustu áramót.

Námskeið um golfreglur 12. apríl og 25. apríl kl.20:00

 Dagskrá:

– Leikhraði, siðareglur, umgengni. Hvernig getum við gert golfleikinn ánægjulegri fyrir alla?- Uppbygging golfreglnanna og grundvallaratriði.
– Helstu breytingar á golfreglunum 2012
– Nánari útlistun á reglum sem oft þarf að nota.
– Hvaleyrarvöllur og golfreglurnar. Staðarreglur, vallarmörk o.fl.

Umræður.