Það verður að sjálfsögðu haldin skötuveisla á þorláksmessu í golfskálanum. Boðið verður uppá hádegismat kl. 11:30 og aftur kl 12:30. Vinsamlega takið fram við bókun hvora tímasetninguna óskað er eftir. Á boðstólnum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur og allt annað sem þarf til að koma þér í jólaskap. Húsið er öllum opið á meðan borðrúm leyfir. Miðaverð aðeins 2,900 kr vinsamlegast bókið ykkur í matinn, í síma 5653360 eða hjá pga@keilir.is.