Golfklúbburinn Keilir og Hafnarfjarðarbær skrifuðu undir samning um 1. áfanga í endurgerð Hvaleyrarvallar nú í Meistaramótsvikunni samkvæmt skýrslu Tom Mackenzie frá því 2013.

Kostnaðaráætlun framkvæmdanna hljóðar uppá 49.490.099 krónur, hlutur Hafnarfjarðarbæjar er 39.592.079 og hlutur Keilis 9.898.020 og verður unnin að mestu leyti nú í sumar. Um er að ræða holur 10-11-12 í endanlegu skipulagi (eftir áfangana 3) og stendur til að opna þær holur á afmælisárinu 2017. Þær holur sem verða aflagðar við breytinguna eru núverandi holur 13-14-16. Þegar fyrsti áfangi verður opnaður mun völlurinn verða leikinn sem hér segir:

10. hola par 3 óbreytt
11. hola par 4 óbreytt
12. hola par 4 óbreytt
13. hola par 4 ný hola sem unnið er í núna (teigur við 1. teig á Sveinskotsvelli)
14. hola par 4 ný hola yfir Hvaleyrarlón
15. holan par 3 ný hola fyrir aftan 15. teig
16. holan par 5 núverandi 15. holan
17. holan par 4 óbreytt
18. holan par 4 óbreytt

Framkvæmdum miðar mjög vel, búið er að setja sand og sá í verðandi 10. brautina. Vegna fokhættu á sandi var brugðið á það ráð að breiða dúk yfir brautina í heild. Unnið er núna í flötinni og umhverfi hennar og stefnt er að að sá í hana á n.k mánudag. Ásamt því að klára flötina verða einnig teigar á næstu holu 11. yfir lónið einnig fullkláraðir.

flot_IMG_0865

 

N.k sunnudag kemur svo Tom Mackenzie arkitekt í heimsókn til að taka út verkið sem unnið hefur verið. Eftir að 10. brautin klárast verður haldið rakleiðist í að gera nýja flöt á 11. brautinni sem liggur með Hvaleyrarlóninu. Verður sú flöt staðsett hægra megin við núverandi 7. flöt á Sveinskotsvelli og verða lágmarks truflanir frá þeim framkvæmdum á Sveinskotsvelli. Spennandi tímar framundan hjá okkur í Keili.

abreidsla_IMG_0857

vorubill_IMG_0850