Það var yngsta kynslóðin sem hóf leik í Meistaramóti Keilis  nú í morgunsárið. Fyrsta holl var klukkan 06:30, þá má segja að viku golfveisla sé hafinn á Hvaleyrarvelli. Formaður Keilis opnaði mótið einsog vant er og óskaði keppendum góðs gengis. Lokað var fyrir skráningu í morgun á netinu, enn ef einhverjir hafa gleymt sér þá er hægt að skrá sig í þá flokka sem hefja leik á miðvikudag í dag og á morgun. Yfir 300 kylfingar eru skráði til leiks og lofar veðrið heldur betur góðu. Enginn vindur í kortunum og spáð er hlýindum alla vikuna.