Vetraræfingar hefjast 6. nóvember 2013.
Sjá æfingatíma á heimasíðu http://keilirar2018.wpengine.com/innra-starf/unglingastarf/.  Hóparnir eru aldursskiptir eins og sést á töflunni.

Skráning hefst laugardaginn 19. október. Aðstandandi þarf að skrá iðkanda hjá Keili í gegnum http://www.hafnarfjordur.is/minar-sidur/. Þaðan er farið inn á síðu Keilis og iðkandi skráður í þann æfingahóp sem við á.  Aðstandandi greiðir einungis mismuninn á niðurgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar og æfingagjaldsins. Lykilatriði er að aðstandandi er ábyrgur fyrir því að skrá iðkandann fyrir 1. nóvember.  Niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ minnkar ef skráning fer fram eftir tiltekinn tíma.  Upplýsingar verða sendar frá Keili á þau netföng sem eru skráð í kerfinu.

Ofangreind niðurgreiðsla miðast við að iðkandi sé skráður fyrir 1. nóvember 2013.  Sé iðkandi skráður eftir þann tíma lækkar niðurgreiðslan hlutfallslega.  Yngstu iðkendum verður áfram heimilt að taka þátt í æfingum án félagsaðildar en greiða þá kr. 20.000 viðbótargjald.

Ég mun hafa umsjón með æfingum í vetur. Aðstoðarþjálfarar verða kynntir til sögunnar á næstu vikum.

–                Æfingahópar verða 11 til að byrja með, iðkendur skrá sig eftir aldri á æfingar. Eins og áður verður hægt að hliðra til ef golfæfingar stangast á við aðrar iðkun.

–                Stofnuð verður ný Facebook-síða, iðkendum og aðstandendum til upplýsinga. Jafnframt mun ég senda mikilvægar upplýsingar með tölvupósti.  Mikilvægt að rétt netföng séu skráð.

–                Haustfundur verður í lok nóvember fyrir foreldra og iðkendur.

–                Starf foreldraráðs hefur legið niðri, mikilvægt er að fá sterkt foreldraráð aftur til starfa.

–                Á næstu vikum verður farið í skoðun á valkostum vegna æfingaferða keppniskylfinga, nánar síðar.

Hvet ykkur til að hafa samband í tölvupósti: bjorgvin@keilir.is

Golfkveðja,
Björgvin Sigurbergsson  Íþróttastjóri Keilis / PGA golfkennari.
bjorgvin@keilir.is
8964512