Nú er viðhorfskönnun Keilis fyrir árið 2012 komin á fullt. Við viljum hvetja Keilisfólk til þess að taka þátt í könnuninni og marka þannig stefnu Keilis til framtíðar. Margt gott kom út úr síðustu könnun sem auðveldaði stjórn Keilis að marka stefnuna á síðasta ári.

Það sem vekur athygli nú er að af þeim sem svara hafa er lang stærsti hlutinn eða 42% þátttakenda á aldrinum 51-99 ára. Þeir sem ekki eru að fá könnunina geta skráð sig á póstlista Keilis á forsíðu heimasíðunnar, keilirar2018.wpengine.com.

Enn og aftur hvetjum við alla Keilisfélaga að skrá sig og taka þátt.