Í dag (miðvikudaginn 7. maí) er verið að yfirsá í flatirnar í hrauninu.  Þetta getur valdið einhverri truflun fyrir kylfinga, en við reynum okkar besta til að halda fólki ánægðu.

Þeir sem leikið hafa völlinn í ár hafa tekið eftir því að önnur flötin er frekar illa farin.  Við munum yfirsá í hana í dag og setja dúk yfir.  Þetta verður gert til að hraða spírun á fræjum eins mikið og hægt er.  Þetta þýðir að við verðum að færa út af flötinni næstu daga á meðan dúkurinn liggur yfir.  Við vonum að kylfingar sýni okkur skilning á þessari framkvæmd, en þetta gerir það að verkum að flötinn verðu mun fyrr kominn í gott ástand.